Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, og alþjóðlegir samstarfsfélagar hennar hafa fengið rúmlega 365 milljóna króna styrk úr Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB um kynjajafnrétti í vísindasamfélaginu. Áætlunin nefnist Horizon 2020.
Verkefninu er ætlað að stuðla að kynjajafnrétti í vísindasamfélaginu og stendur í þrjú ár og stjórnandi þess er dr. Jörg Müller við rannsóknarstofnunina Internet Interdisciplinary Institute (IN3) við Universitat Oberta de Catalunya á Spáni. Rannsóknarhópurinn samanstendur af fræðafólki frá 17 stofnunum í tíu Evrópuríkjum og Argentínu. Af heildarstyrk til verkefnisins koma 26 milljónir króna í hlut Háskóla Íslands.
Í verkefninu er sjónum beint að kynjaskekkju á þremur sviðum: starfsmannamálum, ákvarðanatöku og inntaki rannsókna og kennslu á háskólastigi.