35 þúsund hafa skrifað undir

Hartnær 35 þúsund landsmenn hafa nú skrifað undir kröfu þess efnis að þjóðaratkvæðagreisla fari fram um fiskveiðistjórnun hér á landi, en tilefni undirskriftasöfnunarinnar er umdeilt makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra.  


Þetta þýðir að undirskriftaarsöfnunin er orðin sú tíunda stærsta í s0gu þjóðarinnar, en alls hafa 34,828 landsmenn skrifað sig á listann, en það er vel r0sklega tíund kosningabærra íslendinga.


Deilan um makrílfrumvarpið snýst um þann ótímabundna rétt sem útgerðir hafa til veiða á þessum verðmæta uppsjávarfiski, en aðrar fiskveiðiheimildir af hálfu stjórnvalda hafa verið bundnar við eitt ár. Gagnrýnendur frumvarpsins segja að hér sé á ferðinni grundvallarbreyting á núverandi fiskveiðistjórnarkerfi - og í reynd sé í fyrsta sinn afráðið af stjórnvöldum að úthluta sameiginlegri auðlind landsmanna ótímabundið til útgerðarmanna.


Hart hefur verið deilt á sjávarútvegsráðherra vegna málsins á Alþingi og hann þar verið vændur um að gefa fáum útvöldum kvótann sem í reynd eigi að vera á forræði fólksins í landinu.