Að minnsta kosti 200 lögreglumann vantar til að fylla raðir löggæslunnar hér á landi og milljarða skortir til að hægt sé að halda úti nauðsynlegri þjónustu á sviði hennar.
Í tilefni af kjaradeilu lögreglunnar sem enn hefur ekki samið við ríkið um endurnýjaðan kjarasamning hefur verið vakin athygli á bágbornu ástandi löggæslumála hér á landi sem lítt eða ekki hefur verið lagað frá því skorið var niður í fjárframlögum hennar strax eftir hrun. Legið hefur fyrir um árabil að fjölga þarf í lögregluliði landsins um á þriðja hundrað manns. Nefnd á vegum innanríkisráðherra komst að þeirri niðurstöðu fyrir rúmlega tveimur árum að hækka þyrfti fjárframlög til lögreglu um 3,5 milljarða.
\"Það er ljóst að það þarf a.m.k. 200 lögreglumenn í lögregluliðið eins og það er í dag til að lögreglan geti sómasamlega sinnt lögboðnum skyldum sínum,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í skriflegu svari til Fréttablaðsins þar sem óskað var eftir svörum vegna þess að allt frá hruni hefur Vinnuvernd ríkisins endurtekið beint því til Stjórnarráðsins að gera átak í vinnuvernd þeirra fjölmörgu sem starfa hjá hinu opinbera.
Í frétt blaðsins um þetta efni í dag segir: Tölur yfir vinnuslys opinberra starfsmanna, bæði í opinberri stjórnsýslu og þjónustu, eru hvað hæstu tölurnar í allri slysatölfræði eftirlitsins og sker lögreglan sig úr hvað það varðar. Rót þess vanda er mikil og viðvarandi undirmönnun, er mat Vinnueftirlitsins.
Þegar horft er fáein ár aftur í tímann má finna þess stað á fjölmörgum stöðum að vandi lögreglunnar er viðurkenndur af öllum sem gerst þekkja – stjórnvöldum þar með talið. Í ársskýrslu ársins 2014 segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri að á árunum 2007 til 2014 fækkaði lögreglumönnum um tæplega 100, en aukafjárveiting árið 2014 leyfði ráðningar á 44 nýjum lögreglumönnum. Enn er þó langt í land, segir Haraldur, og vísar til niðurstöðu nefndar innanríkisráðherra frá mars 2013 sem skipuð var fulltrúum allra þingflokka, tveimur fulltrúum innanríkisráðuneytisins, ríkislögreglustjóra, Landssambands lögreglumanna og fleiri.
Niðurstaða þingnefndarinnar [Nefnd um gerð löggæsluáætlunar um Ísland] var að fjölga þyrfti lögreglumönnum um 236 eða um rúmlega 40%. Það eru fleiri lögreglumenn en starfa í heild sinni utan höfuðborgarsvæðisins. Í febrúar var fjöldi lögreglumanna samkvæmt upplýsingum ríkislögreglustjóra 640. Að mati ríkislögreglustjóra þurfa lögreglumenn í landinu að vera að lágmarki 860.