35 konur handteknar á fótboltaleik

35 konur voru handteknar í Íran í dag þegar þær reyndu að komast á knattspyrnuleik. Leikurinn var milli tveggja liða í Teheran, Esteqlal og Persepolis. Konum í Íran hefur verið bannað að sækja knattspyrnuleiki síðan í byltingunni 1979.

Talið er að konurnar hafi viljað undir strika óréttlætið á þessum tiltekna leik því meðal áhorfenda voru forseti Fifa, Gianni Infantino og íþróttamálaráðherra landsins Masoud Soltanifar.

Lögreglan neitaði því að konurnar hefðu verið handteknar, og sagði að þær hefðu „aðeins verið fluttar á meira viðeigandi stað.“