3,3% til verkafólks, 33% til stjórnenda

Samþykkt var á aðalfundi HB Granda í síðustu viku að hækka laun stjórnarmanna fyrirtækisins um þriðjung, eða úr 150 þúsundum króna á mánuði í 200 þúsund. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness bendir á þessa ákvörðun á fésbókarsíðu sinni og segir það kaldhæðnislegt að stjórnin skuli hljóta svo ríflregsa launahækkun á meðan landverkafólk hugi að verkafallsaðgerðum þar eð þeim bjóðist aðeins 3,3% launahækkun. 


Hagnaður HB Granda á síðasta ári nam á sjötta milljarð króna og var afráðið af félaginu að greiða út arð vel á þriðja milljarð króna. Vilhjálmur hefur bent á það að ef að farið væri að launakröfum landverkafólks hjá félaginu myndi það kosta HB Granda um 600 þúsund krónur á ári.


Aðrir verkalýðsforkólfar hafa nefnt af samskonar að stöðugleikinn sem eigi að ríkja við gerð kjarasamninga nái aðeins til verkafólks, ekki stjórnenda fyrirtækja sem þiggi launahækkanir langt umfram venjulegt launafólk.