33% launahækkun útvarpsstjóra

Laun Magnúsar Geirs Þórðarsonar, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins hafa hækkað um þriðjung á einu ári og farið úr 17,2 milljónum króna á ári 22,9 milljónir króna. Þar að auki hafa þóknanir stjórnarmanna stofnunarinnar hækkað um fimmtung á sama tíma, eða 20 prósent frá 2017 til 2018.

Rekstrarhagnaður ríkismiðilsins af samkeppnisrekstri nam 1,8 milljarði króna í fyrra og jókst um 70 milljónir króna á milli ára að því er fram kemur í ársreikningi hans sem birtur var í gær. Þetta mun vera þriðja árið í röð sem Ríkisútvarpið skilar hagnaði. Skuldir þess nema nú 3,3 milljörðum króna og lækkuðu um 250 milljónir á síðasta ári.

Framlög ríkisins til miðilsins námu rúmlega 4,1 milljarði króna á síðasta ári og jukust um 312 milljónir króna.