33% launahækkun er ekki óhófleg

Kristján Loftsson stjórnarformaður HB Granda segir að 33% launahækkun til handa stjórnarmanna fyrirtækisins sé ekkert óhóf. Stjórnarlaunin hafi verið tiltölulega lág hjá fyrirtækinu og allir hafi verið sammála framkominni tillögu um að hækka þau úr 150 þújsundum króna á mánuði upp í 200 þúsund krónur.


Kristján hélt því fram í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld að stjórnarmenn myndu flýja margir hverjir ef ekki hefði verið betur gert við þá eins og nú hefur orðið raunin á. Ekki kæmi til greina að draga til baka þessa hækkun og heldur ekki tæplega þriggja milljarða arðgreiðslu til hluthafa félagsins sem ákveðin var á aðalfundi þess nýverið.


Mikill hiti er í landverkafólki hjá HB GRanda vegna þessarar ákvörðunar en ýtrustu launakröfur þeirra munu kosta fyrirtækið um 600 milljónir á ári sem er um tíund af árshagnaði útgerðarfyrirtækisins. Atvinnurekendur bjóða hins vegar fólkinu nú 3,3% launahækkun, eða tíund af því sem stjórnarmenn hafa fengið.