Líffæragjafar eru nú 32 þúsund

Rúmlega 32 þúsund Íslendingar tekið afstöðu tillíffæragjafar frá því að líffæragjafavefur Embættis Landlæknis var tekinn í notkun í lok október 2014. Um 99 prósent þeirra sem tekið hafa afstöðu samþykkja líffæragjöf. 

Næsta laugardag, 9. september verður dagur tileinkaður líffæragjöfum og líffæraígræðslum í Evrópu. Fjölmargar þjóðir sameinast um þetta átak sem hefur það að markmiði að hvetja einstaklinga til að taka afstöðu til líffæragjafar jafnframt því að miðla upplýsingum um líffæragjöf og ígræðslu.

Á vefsíðunni www.heilsuvera.is hægt að taka afstöðu til líffæragjafar.