32 íslendingar eru 100 ára og eldri

32 einstaklingar eru í dag100 ára eða eldri hér á landi, en til samanburðar má geta þess við að fyrir réttum aldarfjórðungi taldi þessi aldurshópur 17 einstaklinga. Tölurnar eru fengnar frá Hagstofunni og miðast við fjölda Íslendinga 1. janúar ár hvert. Íslendingar eru að eldast hratt samkvæmt samantekt sem upplýsingaveitan spyr.is tók saman fyrir Hringbraut. Þannig má sjá að Íslendingar 35 ára og yngri eru nánast sami fjöldi og fyrir aldarfjórðungi síðan, þar er aukningin aðeins 0,8%.


Ef litið er til eldri aldurshópa, má hins vegar sjá mikla aukningu. Þannig eru Íslendingar 80 ára og eldri nú 72% fleiri en árið 1990. Mannfjöldaaukning á Íslandi nemur hins vegar tæplega 30% á þessum sama tíma. Í svari sem upplýsingaveitan spyr.is birti í síðustu viku og Hringbraut sagði frá, kemur fram að samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar er gert ráð fyrir að 27% þjóðarinnar verði 65 ára eða eldri árið 2050.