Tölublað skopritsins Spegilsins verður gert aðgengilegt á Landsbókasafninu í dag, 32 árum eftir að lögbann var sett á birtingu þess vegna guðlasts sem talið var að finna á síðum þess. Landsbókavörður segir að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar þess að Alþingi afnam ákvæði hegningarlaga um guðlast.
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður, segist í samtali við mbl.is gera ráð fyrir að annað tölublað Spegilsins frá 1983 verði gert aðgengilegt á vefnum tímarit.is og í bókasafninu sjálfu í dag. Hæstiréttur staðfesti lögbann á dreifingu blaðsins fyrir 32 árum þar sem innihald þess þótti stríða gegn ákvæðum hegningarlaga um guðlast. Í því var að finna háð um fermingar.
Eftir að Alþingi samþykki að afnema ákvæði um guðlast úr lögum á dögunum segir Ingibjörg að sér hafi þótt það ágætis tilefni til þess að birta blaðið en það hefur formlega verið óaðgengilegt fram að þessu: \"Ég á ekki von á það verði nein læti út af þessu. Þetta er búið að vera í umferð á síðu Vantrúar og það hefur ekki nokkur maður kært það. Ég á ekki von á að þetta hafi nein eftirköst,“ segir landsbókavörður í samtali við mbl.is.
Blaðið verði að öllum líkindum gert aðgengilegt síðar í dag, að því gefnu að engin tæknileg vandamál komi upp.
Úlfar Þormóðsson, ritstjóri Spegilsins, var dæmdur til að greiða sekt þegar hann var fundinn sekur um guðlast vegna útgáfu blaðsins á sínum tíma og er eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur verið sakfelldur fyrir það.