RÚV greinir frá því í frétt sinni um atvikið að neyðarköll hafi borist frá yfir 20 bátum. Norskt herskip og bátur á vegum Lækna án landamæra aðstoðaði Ítali við björgunina.
Ríflega 100.000 flóttamenn hafa komið frá Líbýu til Ítalíu það sem af er ári. Flestir þeirra þurfa að greiða smyglurum fyrir að komast um borð í bát sem fer yfir Miðjarðarhafið. Lögreglan í Palermo á Ítalíu handtók í vikunni sex Egypta sem grunaðir eru um að stunda þess háttar smygl. Báturinn sem þeir eru taldir hafa notað var með 432 um borð, meira en tífaldan þann fjölda sem leyfilegt er að hafa í slíkum bát. Farþegum var komið fyrir um allan bát og sögðu nokkrir lögreglu frá því að þeir hafi þurft að greiða smyglurunum fyrir að komast upp úr farþegarými bátsins til þess að fá ferskt loft.
Talið er að minnst 2000 manns hafi drukknað á flóttaleiðinni yfir Miðjarðarhaf það sem af er ári.