300 milljónir í skíðasvæði siglfirðinga

Fyrirtækið Rauðka, sem er í eigu Róberts Guðfinnssonar athafnamanns hefur lagt til 300 milljónir króna til frekari uppbyggingar á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði, en stendur þar að auki í framkvæmdum við nýja hótelbyggingu, Sigló hótels, sem opnað verður í sumar. Það mun vera nánast einsdæmi að einstaklingur leggi svo mikla peninga til uppbyggingar á skíðasvæði hér á landi.


Í þættinum Atvinnulífið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld kl. 21.00 verður tekið hús á forsvarsmönnum skíðasvæðanna umhverfis Tröllaskaga. Víða er mikil uppbygging í ferðaþjónustunni á þessu landssvæði, en Siglufjörður sker sig þó úr hvað framtakssemi varðar. Það er heimamanninum Róberti Guðfinnssyni ekki síst að þakka, en fyrir utan það sem að ofan greinir hefur hann sett fjármagn í uppbyggingu á nýjum glæsilegum 9 holu golfvelli sem verður vígður á næsta ári, en þar á undan byggði hann uppð glæsilega veitingahúsum í gömlu timburhúsunum niðri á kaja í plássinu sem hefur tekið algerum stakkaskiptum eftir tilkomu Héðinsfjarðarganganna.