30 þúsund erindi á hverju ári

Gríðarlegar annir einkenna starfsemi flestra íslensku sendiráðanna um heim allan, en þau eru 22 að tölu. Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöldi en þarvsagði Stefán Haukur Jóhannesson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins að því færi fjarri að þjónustan sinnti aðeins aðeins þörfum viðskiptalífsins og alþjóðlegum samskiptum stórþjóða; árlega kæmu 30 þúsund erindi til borgaraþjónustu ráðuneytisins, sum væri hægt að leysa með örfáum símtölum, en mörg gætu tekið marga mánuði í úrvinnslu og reynt mjög á í samskiptum, sérstaklega þegar um erfið mál væri að ræða eins og sakamál, dauðsföll eða slysfarir.


Stefán Haukur segir mikinn misskilning að utanríkisþjónusta Íslands sé of umfangsmikil eða dýr í rekstri, raunin sé að kostnaður hafi verið skorinn niður um 30% síðan 2007 og samt takist Íslandi að halda úti mjög góðri og metnaðarfullri þjónustu.


Eins og fram kom í fyrri frétt hringbrautar.is um málefni utanríkisþjónustunnar rekur Ísland 22 sendiskrifstofur víða um heim með 54 útsendum starfsmönnum.  Til samanburðar má nefna að Malta sem hefur svipaðan íbúafjölda og Ísland rekur 28 sendiráð með 75 starfsmönnum og Lúxemborg sem er 36 með 63 starfsmenn.