Fjórir Íslendingar voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Spáni vegna málsins. Í spænska vefmiðlinum Murcía Today er fíkniefnaverksmiðjunni lýst sem þeirri fullkomnustu í Evrópu.
Að því er fram kemur í frétt RÚv um málið er talið að tíu tonn af kannabis hafi verið framleidd í verksmiðjunni og flutt til Hollands í hverjum mánuði. Götuvirði efnanna er eftir því sem fréttastofa kemst næst allt að þrjátíu milljarðar.
Grunaðir höfuðpaurar málsins eru hollenskt par, og íslenskur karlmaður á sextugsaldri. Hann er skráður fyrir leigu á verksmiðjuhúsnæðinu, en samkvæmt spænskum vefmiðlum taldi eigandi hússins að þar færi fram framleiðsla og þróun á einangrunarefni. Grunur vaknaði um framleiðsluna þegar nærstödd fyrirtæki kvörtuðu undan truflunum á rafmagni.
Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að í bígerð var að gera aðra eins verksmiðju í vöruhúsi í Alicante-héraði.