30% landsmanna á faraldsfæti

30% landsmanna hyggjast leggjast í ferðalög yfir páskahátíðina, langflestir innanlands en einnig þónokkur hópur út fyrir landsteinana, að því er fram kemur í nýrri könnun Maskínu um ferðavenjur fólks á þessum árstíma þegar að minnsta kosti almanakið segir fólki að freri og froststiðrningur sé brátt að baki. Rö-sklega helmingur aðspurðra í könnuninni hyggst hvergi fara og halda sig heima við á þessum einum helgustu tíðum kristinna manna.


Ferðaveðrið er svo sem ekkert að leika við landsmenn næstu daga því enn er þæfingsfærð og jafnvel þungfært um norðan- og austanvert landið, svo sem á Jökuldal og þá er ófært um Vatnsskarð eystra. Skafrenningur er enn víða á öðrum heiðum pog má þar nefna Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Víkurskarði.