Nærri 30% fleiri ferðamenn komu til Íslands á síðasta ári, samanborið við árið 2014 að því er fram kemur í tölum sem Ferðamálastofa birtir í dag um fjölgun erlendra ferðamanna til landsins.
Fjöldi ferðamanna sem lagði hingað leið sína í fyrra var alls 1,289,140, en þeir voru 997,556 árið áður. Fjölgunin nemur 291,584 ferðalöngum, eða sem nemur 29,2%.
Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en 100.141 farþegar komu til Reykjavíkur með 108 skipum.