Nú er ljóst að alngflestir þeirra sem létust eftir hryðjuverkaárásina í Túnis fyrir helgi voru Bretar, en af 38 fórnarlömbum skotárásarinnar sem Isis-samtökin segjast bera ábyrgð á, voru 30 breskir ferðamenn.
Breska ríkisútvarpið BBC kveðst hafa öruggar heimildir fyrir að í það minnsta 30 hinna látnu séu Bretar en það hefur ekki verið staðfest opinberlega. Árásin er sú mannskæðasta í breska ríkisborgara síðan sprengjur sprungu í Lundúnum árið 2005.
Breska ríkið hefur sett viðamikla rannsókn af stað vegna árásanna í Túnis. Meira en 600 manns hafa verið sendir til Túnis í tengslum við rannsóknina, en talið er vullvíst að árásarmaðurinn, hinn 23 ára Seifeddine Rezgui hafi fengið hjálp við ódæðisverk sitt. Hann þóttist vera strandgestur eins og aðrar sem lágu á ströndinni í sólbaði. Hann var AK-47 riffil undir sólhlíf og hóf svo að skjóta á fólk af handahófi. Rezgui gekk næst inn á Imperial Marhaba-hótelið og hélt skothríðinni áfram. Hann var svo skömmu síðar skotinn til bana af lögreglumönnum.
Fyrir utan þá 38 sem létu lífið í hryðjuverkinu slösuðust 36 manns illa.