Þrjátíu ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða er á laugardaginn, 8. Október. Við þau tímamót verður stofnað Höfði Friðarsetur við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands. Meðal þeirra sem taka þátt er Frú Vigdís Finnbogadóttir og hátíðarávarp mun Ban Ki-Moon aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna halda.
Leiðtogafundurinn 1986 á milli Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna markaði tímamót þar sem tekin voru mikilvæg skref í átt að friði og lokum kalda stríðsins Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, sem mun halda ávarp á ráðstefnunni á laugardag kemur við á Þjóðbraut í kvöld á tíunda tímanum.