30% ánna drápust á stöku búum

Samkvæmt samantekt Bændasamtakanna og Matvælastofnunar hafa samtals 4,639 ær drepist í fjárdauðanum sem einkennt hefur sauðfjárhald víða á landinu það sem af er þessu ári.

Engar útskýringar hafa enn fundist á þessum mikla fjárfelli en dýralæknar á vegum Matvælastofnunar vinna að rannsóknum á honum. Hugsanlegt er talið að fjárdauðinn sé öllu meiri en þessar tölur gefa til kynna en aðeins bárust svör frá 346 bændum þegar eftir þeim var leitað.

Fjárdauðinn kemur mjög misjafnlega við bú landsmanna, en dæmi eru um tvö bú þar sem nærfellt þriðjungur ánna drapst og í einum fimm tilvikum drápust 15 til 20% fjárins.

Fjárdauðinn á fyrri helmingi þessa árs er tvöfalt meiri en sömu bændur misstu á tveimur heilum árum þar á undan.