Vanda Sigurgeirsdóttir lektor þekkir hæðir og lægðir í sjálfstrausti úr íþróttaferli sínum. Hún gaf konum góð ráð til að efla sjálfstraust í þættinum ,,Fólk með Sirrý” á Hringbraut:
,,Til að efla sjálfstraust þurfum við:
1. Skilaboð að utan. Því þurfa konur að standa saman og hvetja hver aðra.
2. Prufa og læra nýja hluti. Láta bara vaða. Þetta kemur allt með æfingunni.
3. Stoppa niðurrífandi sjálfstal. Setja upp stoppmerki þegar neikvæð innri rödd talar konur niður.
Vanda ræddi um að sumar stelpur niður í 6 ára aldur fara í megrun. ,,Lítil stelpa finnur þetta ekki upp hjá sjálfri sér. Skilaboðin koma frá mæðrum og samfélaginu. Því þurfa konur að gæta að hvað þær segja m.a. á samfélagsmiðlum. Það ætti að vera regla að skrifa ekki bara ,,sæta, sæta” vð myndir á Facebook heldur láta einhver önnur ummæli fylgja með líka, hrós um innri þætti eða eitthvað annað en útlitið.”
Oddný Harðardóttir þingmaður og fyrrum ráðherra og Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bæjarráðs Garðabæjar ræddu lika um konur og sjálfstraust. Þátturinn Fólk með Sirrý er endurtekinn á Hringbraut á tveggja tíma fresti í allan dag til kl.18.00. Hér má sjá brot úr þætti gærkveldsins.