29 milljónir í styrki frá hringnum

Hringurinn kvenfélag hefur það sem af er þessu ári veitt styrki upp á 29 milljónir króna. Sautján styrkir voru veittir en í tilkynningu frá Hringnum segir að nú renni upp mikilvægasti fjáröflunartími félagsins.

 

Styrkirnir eru þessir:

 Fósturgreiningardeild Barna og Kvennasviðs LSH. Sex birgðavagnar. Kr. 374.328.-

 Barnaspítali Hringsins. Tveir mjólkurhitarar og 14 veggfest skiptiborð. Kr. 553.130.-

 Gjörgæslur og vöknun Fossvogi og Hringbraut.  Tvö blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 2.419.186.-

 Skurðstofur LSH. Kviðspeglunarvél fyrir börn. Kr. 2.014.368.-

 Skurðstofur LSH. Blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 1.209.583.-

 Skurðstofur Fossvogi. Blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 1.209.583.-

 Bæklunarskurðdeild LSH. Verkfærasett og teinar fyrir meðhöndlun brota á rörbeinum. Kr. 2.335.500.-

 Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Borðtölva og fartölva fyrir ungmenni með fötlun. Kr. 275.450.-

 Erfða- og sameindalæknisfræðideild LSH. Litningagreinasamstæða. Kr. 10.000.000.-

 Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Þjálfunartæki og sérhæfð þroskaleikföng. Kr. 649.346.-

 Sjúkrahúsið Akureyri. Æfingadúkka vegna þjálfunar í notkun barkatúba. Kr. 194.086.-

 Svæfinga- og gjörgæsludeild LSH Fossvogi. Tæki til að auðvelda ísetningu æðaleggja hjá börnum. Kr. 632.208.-

 Svæfinga- og gjörgæsludeild LSH Hringbraut. Tæki til að auðvelda ísetningu æðaleggja hjá börnum. Kr. 632.208.-

 Skurðstofur LSH Hringbraut. Nathanson lifrarhaki fyrir börn. Kr. 470.660.-

 Vökudeild Barnaspítala Hringsins. Síriti/monitor til að mæla lífsmörk. Kr. 724.042.-

 Gjörgæsludeild Fossvogi. Ómtæki fyrir börn. Kr. 4.500.000.-

Heimili fyrir börn, Þingavaði 3. My Base dýna og kjöltupúði, tveir Sensit stólar og skammelar. Kr. 796.533.-