29 kindur felldar vegna vanrækslu

Lausagöngufé var fellt í Loðmundarfirði um liðina helgi, alls 29 kindur. Málið varðar tvo bæi. Matvælastofnun hefur margsinnis haft afskipti af öðru búinu á undanförnum árum.

Í tilkynningu MAST segir að farinn hafi verið leiðangur um helgina í Loðmundarfjörð til að ná því sem eftir var af fé sem hefur verið í lausagöngu í firðinum, án eftirlits og fóðrunar.

 

Ástand fjárins var breytilegt. Flest var horað og margar kindurnar styggar og margreyfaðar sem gefur til kynna að þær hafi gengið lausar um einhvern tíma. Sumar ærnar voru einnig lembdar. Matvælastofnun hefur margsinnis haft afskipti af öðru búinu á undanförnum árum.

Átján af þeim 29 kindum sem fundust voru frá einum bæ, ein frá öðrum bæ og 10 voru ómerktar.

Kröfur MAST um úrbætur hafa ekki verið virtar að fullu og hefur fé frá bænum fundist í Loðmundarfirði að vetrarlagi. Umráðamanni dýranna var veittur frestur til fyrsta febrúar síðastliðinn til að endurheimta fé sitt úr firðinum, sem hann gerði að hluta. Ekki er útilokað að fleira fé sé enn úti.

Matvælastofnun sinnir eftirliti með velferð dýra en ábyrgð á fjallskilum liggur hjá sveitarfélögum.