287% hækkun á eplum á fimm árum

Rauð epli hækkuðu um 287% í Bónus á árbilinu 2007-2012.


Á þetta bendir dagskárgerðarmaðurinn Gulli Helga en hann hefur birt á facebook-síðu sinni yfirlit yfir hækkun á vöru á þessu fimm ára tímabili.


Allmörg dæmi má finna um að vörur hafi hækkað um 200-300%. Ritz-kex sem kostaði 49 krónur kostaði fimm árum síðar 159 krónur. Nemur verðhækkun á kexinu 222%.


Rauð vínber fóru úr 269 krónum í 895 krónur, hækkunin nemur 233%.


Iceberg hækkar einnig um 233% á þessu tímabili, fer úr 174 í kr. 579.


Svo mætti lengi telja en samanburðurinn hefur vakið mikla athygli. Tölurnar má sjá á myndinni að ofan.