Álit landlæknis varðandi alvarlega stöðu á bráðamóttöku Landspítalans kemur fram í minnisblaði sem Alma Möller landlæknir hefur sent Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Þar má lesa margar alvarlegar athugasemdir við þjónustuna. Til dæmis er sá tími sem sjúklingar sem bíða innlagnar og þurfa að vistast á bráðamóttökunni að aukast stöðugt, er nú 23,3 klst. miðað við 16,6 klst. fyrir ári síðan.
„Þessi þróun á sér stað þótt búið sé að rýna ferla og taka upp ýmsar nýjungar. Til samanburðar má nefna að erlend viðmið gera ráð fyrir að sjúklingar dvelji ekki meira en 6 klst. á bráðamóttöku. Dæmi eru um að sjúklingar hafi þurft að bíða innlagnar í allt að 66 klst. og að sjúklingar útskrifist, þ.e. ljúki meðferð, án þess að hafa komist á viðeigandi deild. Allt að 76 sjúklingar hafa verið á bráðamóttökunni samtímis en pláss er fyrir 56 sjúklinga. Svo dæmi sé tekið voru 267 sjúklingar þar á einum sólarhring þann 5. desember en þann dag komu 216 manns en fyrir var 51 sjúklingur frá fyrri dögum sem ekki hafði verið hægt að útskrifa“, segir í bréfinu.
53 bíða en geta ekki útskrifast
Vikið er að sjúklingum sem lokið hafa meðferð á spítalanum en geti ekki útskrifast þar sem úrræði skortir utan sjúkrahússins. Einkum eru það aldraðir sem bíða eftir hjúkrunarrými og vandinn hafi stigmagnas. Þann 10. desember biðu 53 einstaklingar á bráðadeildum og endurhæfingu.
Ekki hægt að sinna nauðsynlegum sýkingarvörnum
Einnig er nefnt að salernisaðstaða er ekki í samræmi við þarfir og skortur er á einbýlum. Því sé ómögulegt að sinna sýkingavörnum eins og vera ber.
Segir að minnisblaðið sé ritað með hliðsjón af þessum skyldum landlæknis og varði alvarlega stöðu sem skapast hafi á bráðamóttöku Landspítalans. Í því segir m.a.: „Þann 6. desember 2018 barst Embætti landlæknis ábending frá sérfræðilækni í bráðalækningum um að vegna mikils álags væri öryggi sjúklinga ógnað á bráðamóttöku Landspítalans. Haft var samband við forstjóra Landspítalans sem tók undir áhyggjur læknisins. Embættið brást því við með því að hefja samdægurs úttekt á stöðu mála, með heimsóknum, rýni á gögnum og viðtölum við starfsfólk og stjórnendur“. Bið hefur orðið eftir gögnum og segir í blaðinu ljóst að einhverja daga til viðbótar muni taka að ljúka gerð úttektarskýrslu. Aðalatriði málsins eru rakin í minnisblaðinu.
Niðurstaða Landlæknis er þessi:
„Ljóst er að hvorki húsnæði bráðamóttöku né mönnun uppfyllir reglugerð um faglegar lágmarkskröfur nr. 786/2007 miðað við þá starfsemi sem þar fer fram. Þá liggur í augum uppi að ýmis ákvæði um réttindi sjúklinga skv. lögum nr. 74/1997 er ekki hægt að uppfylla við núverandi aðstæður“.
Minnisblaðið í heild sinni má lesa hér.