Menningarfélag Akureyrar – MAk hélt sinn fyrsta aðalfund í Hofi á Akureyri í gær. 500.000 króna rekstrarhagnaður varð á starfsemi félagsins þrátt fyrir að menningarforkólfar norðan heiða telji sig ekki fjárhagslega sitja við sama borð og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu eins og fjallað hefur verið um í fréttum síðustu daga.
MAk tók yfir rekstur Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfoníuhljómsveitar Norðurlands 1. janúar 2015. Fram kom á aðalfundinum í ræðu Gunnars I. Gunnsteinssonar, framkvæmdastjóra MAk, að eitt af aðal markmiðum sameiningarinnar hafi verið að auka framleiðslu og minnka yfirbyggingu þessara þriggja félaga og hafi verið unnið samkvæmt því.
Aðsóknartölur í menningarhúsinu Hofi fyrsta starfsárið er 260.000 gestir heimsóttu Hof á árinu og þar af 160 þúsund frá áramótum. Í ársreikningum kemur fram að velta var um 180 milljónir en helsti útgjaldaliður er launakostnaður upp á 80 milljónir.
MAk er að mestu fjármagnað af Akureyrarbæ í gegnum menningarsamning sveitafélagsins við ríkið. „Sá samningur rennur út um næstu mánaðarmót og því er mikið í húfi að góðir samningar náist fljótt og örugglega milli þessara aðila,“ segir Gunnsteinsson og telur gott að félagið hafi skilað rekstrarafgangi við erfið skilyrði.
Annað kvöld verður frumsýning á nýju íslensku grínleikverki, Þetta er grín - án djóks, en þar fara Saga Garðarsdóttir og Dóri DNA með helstu hlutverk.