2.600 fengið umdeilt þunglyndislyf

Um 2.600 Íslend­ing­ar, þar af rúm­lega 100 börn og ung­menni, fengu ávísað þung­lynd­is­lyfið Seroxat í fyrra, en rann­sókn­ir sýna að notk­un lyfs­ins get­ur aukið lík­urn­ar á sjálfs­vígi hjá ungu fólki.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir að varað hafi verið við notk­un ung­menna á lyf­inu í mörg ár, eða frá því að rann­sókn sem gerð var árið 2001 leiddi þess­ar auka­verk­an­ir í ljós. Ný rann­sókn, sem greint er frá í nýj­asta tölu­blaði breska lækna­tíma­rits­ins Brit­ish Medical Journal, staðfest­ir niður­stöður þess­ar­ar fyrri rann­sókn­ar.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Magnús Jó­hanns­son lækn­ir, sem hef­ur eft­ir­lit með lyfja­á­vís­un­um hjá Embætti land­lækn­is, að öll lyfjameðferð við þung­lyndi geti falið í sér aukna áhættu á sjálfs­vígi. Sterk­ar vís­bend­ing­ar séu um að Seroxat gagn­ist þung­lynd­um börn­um.