Búast má við klukkutímaseinkun á flugi um Keflavíkurflugvöll síðdegis vegna tafanna sem urðu á flugi þaðan í morgun. Þá léku stærstu flugvélar á reiðiskjálfi framan við Leifsstöð vegna sviptibylja sem lömdu á öllu sem fyrir varð, farþegum sem voru komnir út í vél til mikilla óþæginda. Slíkt var raunar hrakviðrið á vellinum í morgun að fjöldi fólks komst ekki inn í Leifsstöð og varð að hafast við í bílum og rútum fyrir utan stöðina. Millilandaflug tafðist um tvo tíma í morgun og var komið í samt lag á ellefta tímanum.
Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki muna eftir öðrum eins illviðravetri í seinni tíma sögu flugs um Keflavíkurflugvöll. Í venjulegu árferði tapist innan við fimm flugdagar á vetri, en frá mánaðamótum nóvember og desember hafi 26 sinnum orðið veruleg röskun á flugi um Keflavíkurflugvöll. Það segi auðvitað sína sögu um það þráláta illviðrakast sem geysað hefur á landinu í vetur.