Embætti ríkislögreglustjóra hefur 26 sinnum á árunum 2005 til 2014 beitt heimild í útlendingalögum til að leggja hald á fjármuni eða flugmiða af útlendingum sem sendir eru úr landi.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar segir að sé að ræða fjármagn upp á 2.550.923 krónur sem runnið hafi í ríkissjóð.
Í svari embættis ríkislögreglustjóra til Fréttablaðsins kemur fram að haldlagt fé sem hér um ræði sé til dæmis lausafé eða gjaldeyrir sem útlendingur er með í fórum sínum þegar lögregla hefur afskipti af útlendingi eða þegar málsmeðferð hefst.
Í frétt blaðsins segir að fjármunirnir sem hér um ræðir séu ekki peningar sem krafist sé eftir á, til að mynda í gegn um útgáfu skuldaviðurkenningar.
56. grein útlendingalaga kveður á um að útlendingum sem vísað sé úr landi sé skylt að greiða fyrir eigin flugfargjöld. Í lögunum segir ennfremur að „Lögreglunni er heimilt að leggja hald á farseðla sem finnast í fórum útlendingsins til notkunar við brottför. Sama gildir um fjármuni til greiðslu á kröfu vegna kostnaðar við brottför og gæslu samkvæmt ákvæði þessu.“
Um þessar mundir er unnið að endurskoðun útlendingalaga en í nýjum lagadrögum eru enn ríkar heimildir til þess að gera fjármagn upptækt af útlendingum eða krefja þá um endurgreiðslu. til að mynda stendur 56. grein laganna nánast orðrétt í nýju lagadrögunum.