74 ár í fangelsi vegna brota fyrir hrun

Þótt embætti sérstaks saksóknara hafa nánast linnulaust verið talað niður af hálfu ýmissa áhrifamanna hér á landi verður ekki annað sagt en að „uppskeran“ sé nokkur, enda margvíslegar sannanir um siðleysi og glæpi sem kostuðu samfélagið gríðarlegt tjón.

Ríkisútvarpið hefur tekið saman að ellefu fyrrverandi bankamenn hafa fengið fangelsisdóma upp á fjögur og hálft ár eða meira bak við lás og slá. Alls hafa íslenskir karlmenn og ein kona verið dæmd í samtals 74 ára og fimm mánaða fangelsi í málum sem tengjast hruninu. Með dómum í síðustu viku hafa 26 einstaklingar hlotið fangelsisdóma vegna brota í aðdraganda hrunsins.

Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson brutu mest af sér og hafa hlotið þyngtu dómana. Alls hafa tíu Íslendingar tengdir bankarekstri Kaupþíngs verið sakfelldir samkvæmt úttekt Rúv. Þyngstu dómar Glitnismanna hafa fallið vegna félags Birkis Kristinssonar, fyrrverandi landsliðsmarkvarðar. Einu Landsbankamáli var skipt upp í tvennt en Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í síðustu viku dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í Hæstarétti. Ræðir um markaðsmisnotkunarmnál eins og stærstu mál fyrri bankanna tveggja.

Fyrstu bankamennirnir sem voru dæmdir til fangelsisvistar eftir hrun voru Jón Þorsteinn Jónsson, Ragnar Z Guðjónsson og Styrmir Þór Bragason sem voru sakfelldir í Exeter-málinu.

Þá fékk Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, tveggja ára fangelsisdóm fyrir innherjasvik. Hann seldi hlutabréf í sinni eigu í aðdraganda hruns.