2500 nýir syrgjendur sjálfsvíga á ári

Sjálfsvíg ungra karla voru umræðuefnið í þættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut á miðvikudagskvöld, en þar kom fram að karlar eru tvisvar til fjórum sinnum líklegri til að taka líf sitt en konur.

Tilefni umræðunnar var átakið ,,Útmeða\" sem er samstarfsverkefni Geðhjálpar, Hjálparsíma Rauðakrossins og Útmeða hlaupahópsins. Ástæða er til að hvetja unga karlmenn sérstaklega til að tala um líðan sína, koma ,,Útmeða\" því við missum allt of marga unga karlmenn á hverju ári sem taka sitt eigið líf.
 
Alls missum við 34-40 einstaklinga í sjálfsvígum á ári og þar af eru 6-8 konur, sagði Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingurhjá Landlæknisembættinu í viðtali við Sirrý: \"Ungir karlmenn eru hvatvísari og því oft ekki að hugsa um endanleikann og því missum við of marga,\" sagði hún og bætti við: \"Á hverju ári eru 2500 nýir syrgjendur á Íslandi vegna sjálfsvíga. Það eru fullar kirkjur. 150-200 manns eru í verulegri angist á hverju ári og þurfa mikla aðstoð vegna áfallsins sem sjálfsvíg nákomins einstaklings er.\" 
 
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Geðhjálpar sagði að rannsóknir hefðu sýnt að karlar geta bætt líðan sína bara með því að tala um hvernig þeim líður: \"Þeim getur liðið allt að 30% betur bara með því að tala um vanlíðan sína,\" sagði hún. 
 
En samfélagið þarf að vera opnara gagnvart þeirri umræðu. Að sögn Stefáns Sveinbjörnssonar, sem sagði frá sjálfsvígstilraunum sínum og dauðahugsunum í þættinum þá er mikið tabú að ræða þessi mál: \"Ef fólk segist ekki vilja lifa lengur og langa til að drepa sig þá eru viðbrögðin \"Nei, þú mátt ekki tala svona. Þetta er ljótt\". En þá er verið að afneita líðan manns og tilfinningum,\" sagði Stefán og talar af reynslu. 
 
Hann bætti við að það þyki mikil skömm fyrir fjölskylduna ef einhver hefur reynt sjálfsvíg. Og Salbjörg geðhjúkrunarfræðingur benti á að ef fólk er að deyja úr öðrum alvarlegum sjúkdómum er skilningur á því að það þurfi að tala um það: \"En fólk í sjálfsvígshugsunum má helst ekki tala um það\". 
 
Í þættinum kom fram að karlar eru 2-4 sinnum líklegri en konur til að taka líf sitt. Og því er ástæða til að hvetja karlmenn til að ræða líðan sína. Hjálparsími Rauða krossins 1717 er eitt úrræðið. Hann er alltaf opinn og ókeypis er að hringja í hann. Verkefnastjóri Hjálparsímans, Hjálmar Karlsson sagði að frá áramótum og til dagsins í dag hafa 347 símtöl og spjöll í 1717.is borist sem snúa að sjálfsvígshugsunum. Áhyggjufullir aðstandendur hringja líka og ræða málin. ,,Það er alltaf ókeypis að hringja og það birtist ekki á símreikningi að hringt hafi verið í Hjálparsímann 1717,\" sagði Hjálmar. 
 
Stefán sem reyndi að svipta sig lífi þegar hann var yngri þakkar fyrir að það tókst ekki. Hann fékk annað tækifæri. Og hann hvetur fólk til að hlusta bara, ekki gefa ráð heldur \"setjast niður, lána tvö eyru og hlusta.\"
 

Kona skrifaði Sirrý bréf vegna þáttarins sem fjallaði um sjálfsmorð karlmanna. Hún bað Sirrý að lesa bréfið í þættinum því hún vildi koma skilaboðum á framfæri: ,,Þeir sem fremja sjálfsmorð gera það ekki allir af þunglyndi eða geðrænum veikindum. Maðurinn minn dó úr angist. Hann framdi sjálfsmorð af fjárhagsáhyggjum og fjármálaóreiðu\". Hún kom að honum látnum og þurfti að vera með manninn sinn látinn í fanginu. Hann var búinn að undirbúa þetta vandlega í 3 daga og kveðja konu sína án þess að hún áttaði sig á því hvað hann ætlaði sér. 

Nánar má sjá þessa umræðu í Fólki með Sirrý hér á hringbraut.is