250 milljóna gjaldþrot Erlu Kókerfingja - Var í Panama-skjölunum

Skiptum er lokið í búi athafnakonunnar Erlu Pétursdóttur. Erla var úrskurðuð gjaldþrota þann 20. Apríl 2016 en skiptalokin voru auglýst í Lögbirtingablaðinu í dag. Lýstar kröfur voru alls 410 milljónir króna en samþykktar kröfur voru 245 milljónir.

Upp í þær fengust greiddar tæplega 15 milljónir króna.

Erla er dóttir Péturs heitins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra og aðaleiganda Vífilfells en fjölskyldan seldi fyrirtækið til Coca Cola Nordic Beverages AS árið 1999.

Þá kom Erla fyrir í Panama-skjölunum alræmdu en samkvæmt þeim var hún eigandi fyrirtækisins Mainbeach Inc. sem var skráð í Bresku jómfrúareyjunum árið 2005. Erla var skráður aðaleigandi þess frá árinu 2008.