25 fyrirtæki fylgja forseta til asíu

Tuttugu og fimm manna lið athafnamanna og fulltrúa einkafyrirtækja fylgja forseta Íslands í opinbera heimsókn til þriggja Asíuríkja sem stendur yfir fram til 10. nóvember.

Forsetinn er nú staddur í Sin gapúr, en fer þaðan til Víetnam 4. nóvember og stendur sú heimsókn yfir til 6. nóvember, en dagana 8. til 10. nóvember verður hann svo í opinberri heimsókn í Suður-Kóreu.

Fjöldi athafnamanna er í opinberu fylgdarliði forsetans, en þeir eru eftirfarandi:

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel,

Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri Marel

Bessí Jóhannsdóttir, sagnfræðingur

Gísli Guðmundsson, forstjóri Ice Fish Farm

Guillaume Suffys, framkvæmdastjóri Hecla Energy

Hafsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Efla Consulting Engineers

Magnús Ásgeirsson, sölustjóri Air Atlanta 

Renaat Janssen, forstjóri Lotus Pharmaceutials Ltd. 

Baldvin Björn Haraldsson, eigandi BBA lögmannsstofu

Atli Björn Þorbjörnsson, eigandi BBA lögmannsstofu

Silja Rún Guðmundsdóttir, framkvlmdastjóri Terns Systems

Magnús Már Þórðarson, forstjóri Tern Systems

Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Isavia

Hörður Harðarson, framkvæmdastjóri Arctic Green Energy (áður Orka Energy)

Guðmundur Ólason, forstjóri CEO Arctic Green Energy (áður Orka Energy).

Þá eru ónefndir fulltrúar Icelandair, Eimskips, Marorku, Loftleiða, Alvogen, Norlandiu, Eskju, Matís, Síldarvinnslunnar og Iceland Excursion Grayline.