2.400 hafa sagt sigmundi upp störfum

Um 2.400 hafa nú á páskadagsmorgni ritað undir mótmæli á Internetinu þar sem forsætisráðherra þjóðarinnar er sagt upp störfum eins og það er orðað.

Ástæðan er Tortólamálið og að ráðherra skyldi ekki upplýsa um tengsl sín og hagsmuni vegna eignar eiginkonu hans í skattaskjóli.

Fyrirsagn undirskriftasöfnunarinnar er \"Sigmundur Davíð, þér er hér með sagt upp störfum! Síðan segir:

\"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þér er hér með sagt upp störfum sem forsætisráðherra Íslands. Við óskum eftir að þú látir af störfum sem fyrst og hverfir af þingi. Þú hefur gerst brotlegur um alvarlegan siðferðisbrest og brotið siðareglur þingmanna. 

Háttvirtur forsætisráðherra Sigmundur Davíð ákvað að halda leyndu frá kjósendum þeim fjárhagslegum hagsmunum sem eiginkona hans á í svokölluðu erlendu skattaskjóli, sem má ætla að séu einnig hans eigin hagsmunir t.d. út frá lögum um hjúskap.

Því óskum við eftir því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segi af sér sem forsætisráðherra Íslands og einnig sem þingmaður.\"

Margir hafa stigið fram á ritvöllinn síðustu daga eftir að Sigmundur veitti Fréttablaðinu og Útvarpi Sögu einum fjölmiðla viðtöl vegna málsins. Þykir sem hann hafi komist létt frá þeim viðtölum miðað við þær áleitnu spurningar sem eru á lofti, mikil óánægja er inni á fréttastofu Rúv yfir því að Sigmundur neiti að ræða við fréttastofuna um málið. Fullur stuðningur framsóknarþingmanna við foringja sinn hefur einnig vakið óhug sumra. Verður sú gagnsýnislausa skjaldborg hvorki Sigmundi né þjóðinni til bóta að mati Sigríðar Stefánsdóttur, sviðsstjóra hjá Akureyrarbæ, sem áður gegndi trúnaðarstörfum fyrir Alþýðubandalagið svo aðeins ein gagnrýni sé nefnd af því sem áhugafólk um samfélag skrifar á facebook þessa dagana.

Minnihlutaflokkarnir á þingi eru að bræða með sér að flytja tillögu um vantraust á Sigmund Davíð eftir að páskaleyfi lýkur.