Stór meirihluti Grikkja vill að samið verði við erlenda lánardrottna um frekari lánaveitingar. Einungis 24% Grikkja vilja að landið yfirgefi evrópska myntbandalagið í stað þess að ná samkomulagi við lánardrottna.
Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem gerð var fyrir gríska dagblaðið Efimerida ton Synktakton.
Samkvæmt könnuninni hefur stjórnarflokkurinn Syriza sterka stöðu á meðal Grikkja. Tæplega 43% sögðust kjósa flokkinn ef gengið yrði til kosninga hér og nú. 66% þeirra sem sögðust styðja flokkinn vilja halda evrunni, en einungis 26% stuðningsmanna vilja taka upp drökmuna á ný.