Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi, sem var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöld segir árangurinn af meðferð SÁÁ mjög góðan. Vandinn sé þó mestur sá að ríkisvaldið neiti enn að viðurkenna alkóhólisma sem hvern annan sjúkdóm.
Þórarinn var á köflum mjög orðhvatur í viðtalinu þar sem hann lýsti jafnt í smátriðum öllu slarkinu og skömminni á eigin fyllerísárum, svo og baráttusögu SÁÁ sem hefur að hans sögn skilað sér gríðarlegum lífsgæðum fyrir tugþúsundir Íslendinga á unfdanförnum árum.
Um 24 þúsund Íslendingar hafa farið á Vog frá því sjúkrastöðin var opnuð fyrir röskum 30 árum. Helmingur þess hóps hefur aðeins komið einu sinni á Vog og náð þannig bata til langframa. 78% skjólstæðinganna hafa komið þrisvar eða sjaldnar á Vog. Þórarinn segir að þessar tölur sýni stórkostlegan árangur og enn meiri ávinning fyrir allt samfélagið sem skili heilbrigðum einstaklingum út í atvinnu- og heimilislífið sem ella myndu ekki geta staðið sig sem skyldi í lífinu.
Hann segir ótækt að ríkisvaldið og heilbrigðisyfirvöld vilji ekki enn kannast við alkóhólisma sem hvern annan sjúkdóm. Það þurfi að taka læknisfræðilega á honum ef árangur eigi að nást; það sé fráleitt nóg að sinna honum með félagsráðgjöf eða samtalshjálp því læknisfræðin ein geti tekið á sjálfu meininu. Hér verði að hafa í huga að þriðjungur þeirra landsmanna sem deyi ótímabærum dauða fyrir 65 ára aldur séu virkir alkóhólistar. Kerfið verði þar af leiðandi að viðurkenna og virða vandann, en geri það ekki. Enn þurfi sjálfboðaliðasamtök að fjármagna sjúkrahúsin fyrir þennan hóp landsmanna að stórum hluta, eða sem nemur 200 milljónum króna á ári. Nú sé álfasalan einmitt að fara í gang og hún ein hafi skilað meðferðarstarfinu 550 milljónum króna á síðustu árum.
"Velferðarkerfið treystir sér ekki til að borga lífsnauðsynlega meðferð bráðveiks fólks," segir Þórarinn og lætur að því liggja að ríkið mismuni sjúklingum að þessu leyti.
Hægt er að nálgast viðtalið í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr viðtalinu á forsíðu vefjarins.