Áætlað að erlendir ferðamenn verði 2,4 milljónir í ár samkvæmt ferðaþjónustuskýrslu Íslandsbanka. Þetta eru ferðamenn sem koma með flugi og skemmtiferðaskipum og er þetta 11 prósenta aukning frá því í fyrra þótt aðallega komi gestirnir flugleiðina. Í kringum 147 þúsund koma með skemmtiferðaskipum. Miðað við þær áætlanir þá koma 6 prósent ferðamanna með skemmtiferðaskipum en 94 prósent með flugvélum.
Áætlaðar eru 166 skipakomur skemmtiferðaskipa til hafnarsvæða Faxaflóahafna sem rekar hafnir Reykjavíkur og Akraness auk fleiri. Fyrsta skemmtiferðaskipið, Magellan, kom 9. mars síðastliðinn en vertíðin hefst í byrjun maí og stendur til síðla haustsins. Á vefsíðu Faxaflóahafna sf. má finna upplýsingar um skipakomur skemmtiferðaskipa fyrir árið til Reykjavíkur og Akraness.