24 ár liðin frá snjóflóðinu á flateyri - megum ekki gleyma þessum degi - fólk var grafið undir snjó í 9 klukkustundir

Flateyri er þorp á Vestfjörðum og er það hluti af sveitarfélagi Ísafjarðarbæjar. Þann 26. október árið 1995 féll gríðarlegt snjóflóð á þorpið með þeim afleiðingum að 20 manns fórust.

Það var á aðfaranótt 26. október fyrir 24 árum sem snjóflóðið féll og voru Flateyringar einir í nærri fimm klukkustundir að grafa og leita uppi vini sína og ættingja. Mikill veðurofsi gekk yfir landið og áttu björgunarsveitir í miklum erfiðleikum með að komast til Flateyri. Þá voru nokkrir einstaklingar sem lentu í flóðinu grafnir undir snjó í allt að níu klukkustundir.

Dagurinn í dag tekur á marga Íslendinga og margir minnast þeirra sem létu lífið í þessu hörmulega slysi. Þetta sama ár markaði tímamót í hamfarasögu landsins en það fórust alls 35 manns í snjóslysi þetta ár. Sem betur fer hafa slys af þessu tagi ekki komið fyrir aftur en í kjölfar þess voru reistir stórir snjóflóðavarnargarðar sem hafa bjargað byggðinni frá frekari snjóflóðum.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Myndir: Facebook/Nóttin sem öllu breytti