Einungis 24 starfsmenn Landspítalans af þeim 328 sem sagt hafa upp frá því í vor hafa dregið uppsagnir sínar til baka eftir að úrskurður gerðardóms um kaup þeirra og kjör féll fyrir tæpum tveimur vikum.
Alls óvíst er hvað verður um þessa rösklega 300 starfsmenn sem enn halda uppsögn sinni til streitu, en fari svo að þeir hverfa til annarra starfa mun það hafa gríðarleg áhrif á þjónustugetu spítalans.
Af þessum 328 starfsmönnum Landspítalans sem sendu inn uppsagnarbréf sitt frá því kjaradeila BHM og hjúkrunarfræðinga komst í öngstræti í vor, eru 275 hjúkrunarfræðingar, 25 geislafræðingar, 26 lífeindafræðingar og tvær ljósmæður. Einungis 24 starfsmenn hafa dregið uppsagnir sínar til baka, svo sem fyrr segir, átta starfsmenn hafa staðfest uppsgögn sína, en óvíst er um afdrif 296 starfsmanna spítalans.
Flestar uppsagnirnar taka gildi í byrjun október.
Meirihluti geislafræðinganna sem sagt hafa upp, eða 20 talsins, munu að óbreyttu hætta á spítalanum eftir þrjá virka daga, að því er fram kemur á RÚV í morgun. Þeir eiga nú í viðræðum við stjórnendur spítalans um útfærslur stofnanasamninga þeirra. Uppsagnir 26 lífeindafræðinga taka gildi eftir rúman mánuð. Formaður þeirra segir engar viðræður hafnar við stjórn spítalans.
\"Fulltrúar í samstarfsnefnd lífeindafræðinga hafa ekki verið boðaðir á fund með Landspítala út af stofnanasamningum neitt núna. Við erum hins vegar alltaf tilbúin á fund, fáum við fundarboð. Það er ennþá mánuður til stefnu, vilji spítalinn gera eitthvað til að halda í sína starfsmenn. “ segir Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður Félags lífeindafræðinga við RÚV.
Enginn lífeindafræðingur hefur enn dregið uppsögn sína til baka.