235 hafa sótt um vernd en 64 í fyrra

235 umsóknir hafa borist um vernd það sem af er ári samkvæmt upplýsingum Útlendingastofnunar.

Í maí síðastliðnum sóttu 56 einstaklingar frá 17 löndum um vernd á Íslandi. Heildarfjöldi umsækjenda á fyrstu fimm mánuðum ársins er þar með orðinn 235 en á sama tímabili í fyrra sóttu 64 um vernd.  Hvað skýrir slíka aukningu þar sem fólkið kemur frá svo ólíkum löndum? Erum við hér á Íslandi í stakk búin að sinna þessum umsóknum eins og best er á kosið? Nýlega var tekin upp sú regla að málshraðinn mætti ekki vera lengri en þrír mánuðir. Hringbraut ræðir við  Áshildi Linnet, fulltrúa Rauða krossins á Íslandi.