230 hafa sagt upp á landspítala

Tvöhundruð og þrjátíu heilbrigðisstarfsmenn hafa nú sagt upp störfum á Landspítalanum vegna óánægju með kjör sín og þeirrar ákvörðunar stjórnvalda að setja lög á verkföll þeirra fyrr í þessum mánuði.

Uppsagnirnar koma mjög misjafnlega niður á deildum spítalans en dæmi eru um að þrír af hverjum fjórum starfsmönnum hafi sagt upp á einstökum deildum.

Langflestir þeirra sem sagt hafa upp störfum eru hjúkrunarfræðingar, eða alls 197 talsins. Þeir fóru sem kunnugt er í verkfall 27. maí og höfðu verið í verkfalli í þrjár vikur þegar lög voru sett á vinnustöðvun þeirra. Ólíkt geislafræðingum, lífeindafræðingum og nátttúrufræðingum á spítalanum, sem eru innan BHM, náðu hjúkrunarfræðimngar að semja við ríkið um tæplega 20% launahækkun á rúmum þremur árum áður en til kasta gerðardóms kom, en allt bendir til að Hæstiréttur skipi þann dóm á miðvikudag til að ákveða kjör féllagsmanna BHM.  

Til viðbótar við uppsagnir hjúkrunarfræðinga á Landspítalans ber nú í meira á því að þessi mikilvæga heilbrigðisstétt dragi úr vinnu sinni á spítalanum, en fram kemur í Fréttablaðinu í dag að 70% hjúkrunarfræðinga eru í minna en 80% hlutastarfi á spítalanum og segir formaður félags þeirra að það komi til að 100% vaktaálag sé alltof sligandi og því kjósi fólk að vera í hlutastarfi.