2,3 milljarðar í uppgreiðslugjöld

Nærri 13.900 lán Íbúðalánasjóðs með skilmálum um uppgreiðslugjöld voru veitt frá árinu 2005 fram til fyrsta nóvember 2013 þegar lög um neytendalög tóku gildi. Hátt í 6.400 af lánunum hafa verið greidd upp á undanförnum tíu árum.  

 

Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daðasonar félags og jafnréttismálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni þingmanni Flokks fólksins. Þar kemur fram að stærstu útlánaár slíkra ára voru árin 2006, 2007 og 2008. 
 

Ólafur spurði einnig um heildarfjárhæð innheimtra uppgreiðslugjalda. Í svarinu segir að milli áranna 2013 og 2017 hafi verið innheimtir 2,3 milljarðar króna í uppgreiðslugjöld. Gögn frá fyrri árum séu ekki aðgengileg þar sem þau hafi ekki verið aðgreind í bókhaldi. „Þess ber þó að geta að í ljósi vaxtaþróunar á þessu tímabili var fjárhæð uppgreiðsluþóknunar óveruleg ef um þóknun var að ræða, en hún féll niður ef vextir á undirliggjandi bréfi voru lægri en útlánavextir á hverjum tíma fyrir sig,“ segir í svari ráðherra sem ruv.is vitnar til í morgun.