Vladimír Pútín, forseti Rússlands hefur fyrirskipað rannsókn á ástæðum þess að rússnesk farþegaþota fórst í dag á Sínaískaga í Egyptalandi, en um borð voru 224 farþegar og áhöfn, aðallega rússneskir ferðamenn sem voru á leið frá strandbænum Sharm el Sheikh til Pétursborgar í Rússlandi.
Allir um borð fórust. Misvísandi fréttir hafa borist af slysinu. Á egypskum fréttamiðli segir að þotan hafi hrapað á þorp á norðurhluta skagans. Það hefur ekki verið staðfest.
Rússneskar björgunarsveitir eru á leiðinni til Egyptalands til að aðstoða þarlenda björgunarmenn við störf á slysstaðnum, en sömuleiðis hyggst Maksim Sokolov, samgönguráðherra Rússlands, fara með hraði til Egyptalands til að fylgjast með rannsókn á slysinu.
Þotan hafði verið í 23 mínútur á lofti þegar hún hvarf skyndilega af ratsjám. Talið er að hún hafi þá verið komin í 31 þúsund feta hæð. Óstaðfestar fréttir herma að flugmenn þotunnar hafi tilkynnt að eitthvað væri að og að þeir þyrftu að lenda sem fyrst á næsta flugvelli.