Íslensk getspá leitar til fjölmiðla um hjálp við að leita að einstaklingi sem keypti 10 raða Lottómiða hjá N1 Ártúnshöfða í október þar sem fyrri leitir hafa því miður ekki borið árangur.
Lottómiðinn var keyptur milli klukkan 16-17 föstudaginn 23. október og er 10 raða sjálfvalsmiði ásamt Jóker og er kvittun fyrir vinningi uppá 22.567.260 króna sem hægt er að fá greitt inná reikninginn sinn - skattfrjálst - um leið og komið er með vinningsmiðann til okkar.
\"Við hvetjum alla til að skoða lottómiðana sína vel og athuga hvort að á miðanum leynist vinningstölurnar góðu frá Lottóútdrættinum 24. október, en tölurnar voru 3, 6, 10, 34 og 37,\" segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.