Alls 213 erlendir ferðamenn slösuðust í umferðinni á síðasta ári og tveir þeirra létu lífið. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu greindi frá þessum tölum á fundi SAF og Samtaka fjármálafyrirtækja í morgun. Aðeins 11 slösuðust í þéttbýli en hinir úti á þjóðvegum. Langflest slys yrðu þegar ekið væri útaf eða bílar yltu. Þátturinn Ferðalagið á Hringbraut fjallaði um umferðaslys ferðamanna þann 1.febrúar og sagði Þórhildur Elínardóttir frá Samgöngustofu frá helstu upplýsingum í þeim efnum.
213 slösuðust á ferðalagi
Fleiri fréttir
Nýjast