Aðeins tvö frístundaheimili í Reykjavík eru fullmönnuð fyrir komandi skólaár, en 211 starfsmenn vantar í 103,3 stöðugildi, segir í Morgunblaðinu í dag. 15,8 þeirra eru stöðugildi með fötluðum börnum og ungmennum og vantar 33 starfsmenn. Betur hefur þó gengið að ráða fólk til starfa í leik- og grunnskóla auk frístundaheimila heldur en í fyrra. Sextán grunnskólar eru fullmannaðir, en 20 skóla vantar en starfskrafta. Aðeins helmingur leikskóla er fullmannaður. Á leikskólana í borginni á eftir að ráða í 61,8 stöðugildi og 33,4 stöðugildi á eftir að manna í grunnskólum borgarinnar.
Í fréttinni segir að óvíst sé með dagsetningar inntöku 128 leikskólabarna af þeim 1.400 sem hafa fengið boð um vistun í haust.