21 í kvöld: það skiptir ekki máli að þetta sé ríkisbanki. krafan um jafnrétti í fjölmiðlum og fyrirtækjum er eðlileg segja viðmælendur 21 í kvöld.

 Ákvörðun Íslandsbanka um að láta kynjahlutföll viðmælenda og þáttastjórnenda inn­an fjöl­miðla ráða við kaup á aug­lýs­ing­um bankans og jafnvel víðar í atvinnulífinu hefur vakið hávær viðbrögð.

Málið er rætt hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.

“Það er ekki alveg ljóst hvernig stendur til að gera þetta”, bendir Valgerður Jóhannsdóttir fyrrverandi fréttamaður og umsjónarmaður MA náms í fréttamennsku á. Hún bendur á að samkvæmt samkvæmt fjölmiðlalögum frá 2011 þá beri fjölmiðlum skylda til að senda til fjölmiðlanefndar kynjahlutfallið í viðmælendum og í starfsliðinu. Fáir ef nokkrir hafi hins vegar gert það.

Valgerður spyr í ljósi deilna um ákvörðun bankans: „Það virðist ekki alveg ljóst hvað er aðalatriðið. Er það að þetta er ríkisbanki? Eða er það að markmiðið er ekki nógu göfugt? Því það er einhvern er bara eins og að hávær hópur bara umsnýst þegar berst tal að kynjakvóta eða eitthvað í þá áttina“.

Þorsteinn Víglundssson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir um ríkiseignarhaldið á banka sem tekur slíkt skref:

„Mér finnst það ekki skipta neinu máli. Bankinn á að vera bara rekinn sjálfstætt og án pólítiskra afskipta. Stjórnendur bankans setja honum stefnu og þar með talið þegar kemur að stefnu um samfélagslega ábyrgð“, segir hann og það sé búið að kalla eftir því lengi að fyrirtæki séu ábyrgari í samfélaginu.

En spurningin um að fjölmiðlar séu ekki venjuleg fyrirtæki heldur með lýðræðislegt hlutverk segir Þorsteinn: „Ég tek heilshugar undir það að þegar að stór auglýsandi setur fram stefnu með þessum hætti að beinlínis velja þá fjölmiðla sem að bankinn mun auglýsa hjá eftir einhverjum viðmiðum. Þá verða þau viðmið að verða sett fram með mjög gagnsæjum hætti“.

Valgerður er umsjónarmaður Meistaranáms í blaða og fréttamennsku við Háskóla Íslands og fyrrverandi fréttamaður og Þorsteinn Víglundssson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mæta í þáttinn 21 til Lindu Blöndal.