21 í kvöld: drífa snædal: „það eru einhver undarleg öfl þarna að verki“. við vitum ekkert hvort aðrir eru á sömu leið og gamma.

Það eru mjög margir leigjendur ofmetinna íbúða hjá þessum sjóðum, svo almenningur hefur hagsmuna að gæta þar, segir Drífa Snædal forseti ASÍ um fjárhagsfall Gamma fjárfestingarsjóðs sem að stórum hluta stóð í kaupum á og byggingu nýrra fasteigna á Höfuðborgarsvæðinu.

Drífa er gestur Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld. 

Nokkrir lífeyrissjóðir fjárfestu í Gamma, ekki þó þeir þrír stærstu. Lífeyrissjóður Vestmannaeyja kannski mest. „Það hefur farið mjög vaxandi að skoða gæði fjárfestinga hjá lífeyrissjóðunum og mikið eftirlit orðið með gæði fjárfestinganna og FME fylgist vel með. En þarna erum við að sjá einhverja sprikla sem eru á markaði eftirlitslausir og ég á mjög erfitt með að trúa þessu þegar milljarðar hverfa“, segir Drífa og meinar að eftirlitið hafi þá ekki staðið sig varðandi húsnæðisumsvif Gamma.

„Það eru einhver undarleg öfl þarna að verki og við vitum ekki hvað annað er í pípunum. Við vitum ekki alveg hvaða aðrir sjóðir eru sem hugsanlega eru að ofmeta sína peninga“, segir Drífa. „Og sálfræðilega fyrir landann er þetta mjög sárt“.

„Við héldum að við værum orðin betri og skynsamari og eftirlitið væri orðið meira en það er hins vegar góðs viti hvað viðbrögðin voru ofsalega harkaleg“

Drífa nefnir að viðbrögðin séu það sterk að nú sé krafist rannsóknar og það eitt og sér boði gott.

Um samdrátt í lánveitingum lífeyrissjóða eins og VR og hvort það sé almennt þrenging á lánamöguleikum segir Drífa:

„Það eru rosalega mörg „ef“ núna. Í fyrsta lagi vitum við ekki hvort það eru fleiri svona sjóðir eins og Gamma sem eru yfirspenntir. Við vitum ekki hvernig húsnæðismarkaðurinn er að þróast, við  vitum ekki hvað er verið að byggja fyrir hverja og við vitum ekki hvernig íbúaþróun verður“.