21 í kvöld: styrmir gunnarsson segir nýtt þjóðmálaafl sjálfstæðismanna nauðsynlegt

Stofnfundur Félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál fór fram í Valhöll, húsnæði Sjálfstæðisflokksins, þann 1.desember síðastliðinn.

„Tilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að skapa vettvang fyrir umræður innan Sjálfstæðisflokksins um málefni sem tengjast fullveldi okkar og dæmi er orkupakki þrjú. Og hins vegar ætlum við að halda uppi fræðslustarfsemi ekki síst fyrir yngri kynslóðir fyrir áfanga í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar“. Segir Styrmir Gunnarsson formaður nýs félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál í viðtali við Bjartmar Alexandersson í þættinum 21 í kvöld.