Mál Freyju Haraldsdóttur gegn Barnaverndarstofu fór fram í Hæstarétti í liðinni viku. Freyju var neitað að fara í gegnum matsferli eins og aðrir til að verða fósturforeldri og sitja þar með tilgert námskeið. Enn er því óljóst hvort að Freyja muni á endanum fá rétt til að gerast fósturforeldri sem hún hefur sóst eftir.
Freyja er gestur Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.
Freyja vann mál sitt gegn Barnaverndarstofu í Landsrétti og mun dómur Hæstaréttar setja mikilvægt fordæmi hvað varðar fatlað fólk og rétt þess til að taka að sér fósturbörn.
Freyju hefur ekki verið neitað um að vera fósturforeldri heldur einungis að fá að fara í gegnum hefðbundið matsferli eins og aðrir. “Við erum ekki komin þangað”, segir Freyja þegar málið er rætt í þættinum um hvort að kerfið hafi endanlega neitað henni um fósturhlutverkið. Aðspurð hvort dæmi séu um að fatlaður einstaklingur hafi ekki staðið sig í hlutverki fósturforeldris, segist hún ekki vita um nein dæmi um slíkt. Barnaverndarstofa hafi notað gegn sér hugmyndir um að hún þætti ekki hæf um að skapa nánd við barn og að barn gæti ruglast á því hver væri foreldri þess, hún eða aðstoðarfólk hennar. Freyja hefur haft notendastýrða persónulega aðstoð eða NPA sem kemur fyrir í lögum um réttindi fatlaðra. Einnig var notað gegn Freyju að hún væri ekki nægilega heilsuhraust. Þessu hafnar Freyja. Ekkert amar að heilsu hennar og hún á sem annað fólk í nánum samskiptum við sitt fólk. Einnig vann Freyja á leikskóla um langt árabil sem menntaður þroskaþjálfi.
Freyja er aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og vinnur að doktorsritgerð sinni um málefni fatlaðra kvenna sem mæðra. Auk þess hefur Freyja áður setið á Alþingi fyrir Bjarta framtíð sem varaþingmaður.