21: „eins og kjarnorkuúrgangur í maganum“

„Það eru skýr tengsl á milli áfalla í bernsku og að fíknisjúkdómar taki sig upp“, segir Tolli Morthens sem er einn fyrirlesara á viðamiklu námskeiði í Hörpu á morgun og laugardag um tengls áfalla og fíknisjúkdóma. Tolli hefur um langt árabil stundað hugleiðslu og Búddisma og hjálpað öðrum í bataferli frá fíkn sem hann sjálfur sigraðist á fyrir mörgum árum. „Fíkillinn er hreinlega að reyna að lækna sig og gera tilveruna bærilegri í óbærilegri stöðu“, segir Tolli í viðtali hjá Lindu Blöndal í 21 í kvöld.  „Mín reynsla er sú að þegar ég er kominn á unglingsár og á að fara að takast á við lífið sem tilfinningavera þá hafði ég enga burði í það, ég var kvíðinn og tilfinningalega einangraður og mín lausn til að taka þátt í lífinu var bara að ganga inn í þessa menningu alkóhóls“, segir hann.

 „Áhrif áfalls sem þú varst fyrir þegar þú varst fimm ára getur haft áhrif á viðbrögð þín við áfalli þegar þú ert sextugur“, útskýrir Tolli. „Heilinn forritar sig svoldið eftir því hvar athygli okkar liggur hverju sinni og ef við erum með mikil áhrif sem mikil orka fer í að bæla og loka þá þýðir það það að það er stöðugt verið að næra þessi áföll, þau eru alltaf að fá sína orku og þá verður afleiðan af þessari bælingu að hún verður alltaf víðtækari og víðtækari og stækkar og stækkar eftir því sem líður á tilveruna því hún fær alltaf meira og meira pláss í sjálfstýringu hugans“, útskýrir Tolli og þannig með tímanum fari hið plássfreka bælda áfall að hafa áhrif á andlega, tilfinningalega og líkamlega heilsu einstaklingsins svo með neyslu reyni hann að gera lífið bærilegra og finna minni til. Hið bælda áfall sé eins og kraumandi \"kjarnorkuúrgangur í maganum\".

En er hætta á því að fólk noti fyrir áföll sem afsökun fyrir því að hætta ekki að drekka eða dópa? Tolli segir slíkt ekki skipta máli því sá sem hafi ekki gefist upp fyrir fíkninni muni nota hvað sem er til að réttlæta áframhaldandi neyslu: „Sjálfur drakk ég mjög mikið út á hvað ég var ósáttur við utanríkismálastefnu Bandaríkjanna“.

Svonefnd áfallafræði ryður sér til rúms núna í meðferðarúrræðum fyrir fólk sem berst við fíkn. Sérfræðingarnir Judy Crane og Tom Pecca frá Bandaríkjunum munu á námskeiðinu sem stendur næsta föstudag og laugardag, beina sjónum sínum að leiðum til jafnvægis eftir erfiðleika eða áföll með því að nota vísindalega staðfestar aðferðir.

Áhrif áfalla geta verið margþætt og geta þau haft í för með sér afleiðingar af ýmsu tagi. Erlendu sérfræðingarnir munu leiða vinnustofu á morgun, föstudag og taka þátt í opnum fundi á laugardaginn. Þann dag verða ólík erindi flutt og ráðstefnugestir heyra reynslusögur einstaklinga sem lent hafa í áföllum og hvernig þeir unnu úr þeim.

Fram koma Veiga Grétarsdóttir, Helga Árnadóttir og Tolli Morthens ásamt því að Bubbi bróðir hans mun mæta, taka nokkur lög og lesa upp úr nýjustu ljóðabók sinni. Í bókinni yrkir Bubbi um áfall sem hann varð fyrir í æsku. Einnig mun Sonny Hall, fyrirsæta frá Bretlandi, segja frá reynslu sinni úr fíkniefnaheiminum og hvernig hann sigraðist á fíkninni.

Ráðstefnan er hluti af alþjóðlegri ráðstefnuseríu sem haldin er víða um heim og byggir á því að auka þekkingu og finna lausnir á andlegum og tilfinningalegum heilsufarsvandamálum. Nýlega stofnuð samtök sem nefnast iCAAD standa að viðburðinum og gera slík reglulega víða í Evrópu og Bandaríkjunum.